Blogg
Tvöfalt áhlaup í gangi:-) - 08. febrúar 2009

Já núna er tvöfalt áhlaup í gangi á mín skemmtilegu meiðsli;-)   Mánudaginn var, eða þann 2 febrúar fór ég í hnéspeglun hjá honum Örnólfi Valdimarssinni, hann sosum gerði ekkert stórvægilegt, hreinsaði þó einhvern ósóma þarna út og sagði að hnéð á mér æti að verða einsog nýt eftir þetta...:-)   þannig að núna er bara að vera rólegur, fara ekki of snemma af stað og ná þessu betra en góðu:-)

Hitt áhlaupið er ja já ansi magnað, á milli jóla og nýjárs 2007 fór ég til Chicago og fór í gegnum heljarinnar rannsóknarpakka hjá stofnun Dr. Joseph Mercola (Dr. Mercola's Natural Health Center ) eitt af því sem hann þau greindu vara að ég átti að vera með vírus sem kallast Helicobacter pylori eða bara H. pylori og það væri einkvað sem maður vill ekki hafa!   Nú þau sögðu að það væru tvær leiðir til að losna við hann, þær væru jafn áhrifaríkar, en önnur var náttúrleg og hin var með hefðbundnum lyfjakokkteill sem samanstendur af 2 mjög sterkum sýklalyfjum og síðan þriðju töflurnar til að jafna magasýrurnar þ.e. halda maganum svona ok meðan þessum sterku lyfja er neyt...   Nú að sjálfsögðu valdi ég náttúrlegu aðferðina, sem var í tveimur skrefum, fyrst 2 mánuðir á ákveðnum náttúrlegum lyfjum og svo 6 vikur á öðrum svona náttúrlegum lyfjapakka, en hann var svo svaðalegur, heilt borð af glösum að ég gafst upp eftir viku, enda leið mér mjög ylla af öllu þessu stöffi, þannig að ég kláraði aldrei pakkann...

Nú fyrir 3 vikum fór ég og hiti Magnús Gottfreðsson veirusérfræðing á Borgarspítalanum og spurði hann einfaldlega að því hvort að þessi vírus H. Pylori væri einkvað sem ég þyrfti að hafa áhyggjur af, svaraða var klárlega já, síðan bætti hann við að það væru svo hröð þróin í rannsóknum á þessum vírusum að ef hann hefði fengið spurningu á prófi þegar hann var í læknisfræði, hvort að H. Pylori væri skaðlegur mönum og hann hefði sagt já, þá hefðir hann verið feldur og já hann Magnús er nú bara rétt um fertugt.   En hvort að H. Pylori væru orsök minna meiðsla vildi hann nú ekki mikið tjá sig um, bara það að hann vildi að ég losaði mig við hann, þannig að núna er ég á þessum svakalega lyfjakúr (kostaði 25 þúsund) og klára hann núna á þriðjudaginn.  

Magnús tjáði mér líka að fyrir nokkrum árum hefðu tveir læknar fengið nóbelsverlaunin í læknisfræði vegna greiningar á H. Pylori...

Þannig að barátan er núna í algleymingi og aldrei verið harðari, eða einsog einhver sagði, við sigrum jú að lokum;-)

3 hafa sagt sína skoðun
Gleðilegt ár:-) - 03. janúar 2009

Já þegar maður fær svona góðu sögu uppí hendurnar þá verður maður að deila henni, sjá hérna fyrir neðan:-)  

En já, meðferðin hjá Holger hefur ekki skilað neinum árangri, svona er þetta bara og lítið við því að segja, nema náttúrlega að halda áfram, er með einn 3 plön í huganum núna sem maður lætur reyna á núna á næstu mánuðum, eitt af þeim er alaveganna að fara í speglun með hnéð, því að mér skilst að í sumum tilvikum geti einkvað verið að þó svo að það sjáist ekki í myndatökunni sjálfri.   Þannig að þetta er klárlega einkvað til að láta reyna á.

Annars var margt frábært við árið 2008, þó að það hafi ekki verið neinir "stórir" sigrar þá er margt sem var aldeilis frábært, eins og t.d. sjósundið og allir fyrirlestrarnir sem ég hélt um hugarfar og markmiðasetningu, já ætli þeir hafi ekki verið í kringum 20 allt í allt fyrirlestrarnir.   Já svona til að nefna nokkrar af þeim, þá voru það m.a. Síminn, Landvirkjum Landnet, Visa, Vodafone, Skeljungur, Íþróttaakademían Keflavík, Keilir og svo fyrir KÞÍ, en þá fékk ég að koma sem gestafyrirlesari inná þjálfararáðstefnu á vegum KSÍ daginn sem bikarúrslitaleikurinn í fótbolta karla var:-)   Já þar fékk ég að verða þess heiður aðnjótandi að messa yfir helstur knattspyrnuþjálfurum landsins og já það var ekkert gefið eftir í þeim fyrirlestri;-)

En annars, þegar ég verð farinn að hlaupa aftur, þá munu tár falla.
---

Þegar yfirþyrmandi erfiðleikar steðja að í lífi þínu og 24 tímar í sólarhring virðast ekki nægja, munið þá eftir majónes krukkunni og golfboltunum.

 

Prófessorinn stóð fyrir framan heimspeki-bekkinn sinn með nokkra muni fyrir framan sig. Þegar kennslustundin hófst hóf hann þögull að fylla stóra tóma majónes-krukku með golfboltum. Hann spurði síðan bekkinn hvort krukkan væri full. Allir nemendurnir voru sammála um að hún væri full.

Prófessorinn tók síðan ílát með smásteinum og hellti þeim í krukkuna. Hann hristi krukkuna léttilega. Smásteinannir röðuðu sér í bilin milli golfboltana. Hann spurði nemendurna aftur hvort krukkan væri full. Allir nemendurnir voru sammála um að hún væri full.

Prófessorinn tók þá ílát með sandi og helti í krukkuna. Sandurinn fyllti tómið í krukkunni. Enn aftur spurði hann bekkinn hvort krukkan væri full. Já svöruðu allir nemendurnir, sammála um að hún væri full.

 

Prófessorinn lyfti síðan tveimur glösum af léttvíni undan borðinu og hellti þeim báðum í krukkuna. Þannig fyllti hann tómið milli sandkornanna. Nemendurnir hlógu dátt.

Nú, sagði prófessorinn þegar hláturinn var á enda, vill ég að þið fallist á það að þessi krukka samsvarar ævi ykkar. Golfboltarnir tákna mikilvægu þættina í lifi ykkar eins og fjölskyldur, börn, heilsa, vini og ástríður ykkar. Þetta eru þættir sem myndu veita ykkur lífsfyllingu þó að allt annað myndi glatast.

 

Smásteinarnir tákna aðra þætti sem skipta máli eins og atvinna, íbúðir eða hús og bifreiðar ykkar.

Sandurinn táknar alla aðra minniháttar þætti sem eftir eru. Ef þið setjið fyrst sandinn í krukkuna þá er ekki pláss fyrir smásteinana eða golfboltana. Það sama gildir fyrir tilveruna. Ef þið sóið öllum tíma ykkar og kröftum í smávægilega hluti verður aldrei laus tími eða tækifæri fyrir þá þætti sem skipta ykkur verulegu máli. Sinnið þeim bráðnauðsynlegu þáttum sem veita ykkur hamingju. Leikíð ykkur við börnin ykkar. Hugið að heilsu ykkar með því að fara í læknisskoðun með reglulegu millibili. Farið út að borða með maka ykkar. Hugið að samverustund fjölskyldunnar. Það er alltaf hægt að taka til og þrífa og þvo bílinn. Hugsið fyrst og fremst um golfboltana, hluti sem virkilega skipta ykkur máli. Forgangsraðið hlutunum. Það sem eftir er, er bara blautur sandur.

Einn nemandinn lyfti hendinni og spurði hvað léttvínið átti að tákna. Prófessorinn brosti. Það er ánægjulegt að þú skyldir spyrja um þetta sagði hann. Léttvínið sýnir okkur að þrátt fyrir hversu annasamt líf ykkar getur orðið er alltaf næði til að fá sér léttvínsglas í góðra vina hópi.

Sigurlaug G. Ingólfsdóttir - 12. Janúar 2009 - 23:17
Sæll Ásgeir og gleðilegt ár. Mér finnst alltaf fróðlegt að kíkja öðru hvoru á síðuna þína og lesa. Mig langar samt að segja þér aftur frá heilun í sambandi við hnéð, þetta er greinilega eitthvað rótgróið hjá þér...og jú það eru til fleiri heilarar en ég...

Ásgeir - 11. Janúar 2009 - 20:22
Kærar þakkir öll:-)

Áslaug - 10. Janúar 2009 - 17:51
Skemmtileg lesning :)

Kristín - 09. Janúar 2009 - 18:44
Já, þessi saga er alveg brilljant. Einhvern tíman langaði mig til þess að gefa bestu vinkonu minni táknræna gjöf. ég fyllti blómapott af steinum frá Siglunesi, og fyllti uppí með sandi af ylströndinni - og bað hana um að gleyma ekki stóru steinunum í lífi sínu:)

spurning hvort að kuldinn í sjónum hafi tímabundin góð áhrif á meiðslin?

Sjáumst vonandi!
Kristín

Gunnlaugur - 04. Janúar 2009 - 14:08
Gleðilegt ár Ásgeir. Gott að heyra frá þér. Leitt að heyra að skrokkurinn skuli ekki vera á uppleið en þetta kemur. Vertu viss. Til hamingju með alla fyrirlestrana. Það er ekkert smá mál að fá tækifæri til að miðla reynslu sinni og þekkingu til annarra. Gott fyrir aðra að fá möguleika að fá innsýn í þinn hugarheim og hvað liggur á bak við öll afrekin.
Bestu kveðjur
Gunnlaugur

IP talan þín er: 38.107.191.100
Nafn:

Texti:
 captcha
Kóði:
Meðferðin frá Holger:-) - 22. nóvember 2008
Já vikan hefur verið nokkuð vanabundinn, æfa í Laugum á morgnana, vinnan og svo eftir vinnu meðferðin hans Holger, verð að viðurkenna að svona fyrir frekar óþollinmóðan mann, þá tekur þetta alveg á - hehe. Læt meðferðina góðu fylgja með:

I will use some abbreviations:

1.        Big electrodes = BE

2.        little electrodes =LE

3.        Channel = ch

4.        Frequenztherapie = FT

 

1. Borelliosis

FT 690 KHZ, start again with 12 Volt and 14 minutes, position of electrodes is for ch1 with both feet on one BE and the other in your neck, ch2 with LE at both wrists on pulls side.

---

2. Teeth

 FT 373 KHZ, start at 15 Volt and 14 minutes, position of both LE at your wrists pulls side. Now contact your tooth area 5/6/7 in your left up line with one finger when you start the program.

 

3. Cystopyelitis / Blodder/ E.coli

FT 393 KHZ, start again with 13 Volt and 14 minutes, position of electrodes is ch1 directly on your blodder in front and back on your sacral bone, ch2 LE at both wrists on pulls side.

 

4. Listeriosis

FT 471 KHZ, start again with 13 Volt and 14 minutes, position of electrodes is only ch1 with BE directly on your stomach (solar plexus /under the left costal arch in front and backside).

 

"Wilde Karde" take 15 drops three times a day, let them for more than 1 minute under your tongue and then absorb them.

 

After each treatment reduce the voltage about 1 Volt. Between 15V and 8V we treat 14 minutes, between 7V and 4V we treat 11 minutes, 3V only 7 minutes. When you test the frequent weak in muscle testing, we have to talk about to continue with a treatment of 3 Heart for 3 minutes, to give the intracellular living "animals" the chance to come!

 

Detoxication of heavy metal: First step is to work with Spirulina: 14 days with three pills, then one day 30 pills and after that one day to pause. This interval you repeat for three times = 6 weeks

Than continue always with 3 pills.

Attention!!!   When you feel ill, take immediately 30 pills and start again after 1 or 2 days when you feel good.

1 hafa sagt sína skoðun
Dagur 3 með Holger:-) - 16. nóvember 2008

Já núna byrjuðum við kl 0800 og já það stóð, enda var Holger kappi að fara að eiða deginum með fjölskyldunni sinni og vildi því vera laus snemma, nú við vorum samt sem áður til að verða 1200 að vinna að hinum ýmsu prófunum, en já þess má líka geta að oft komu svona styttri pásur í þetta hjá okkur, svona þegar aðrir voru að koma til hans í meðferð eða já svona spjall, þannig að þetta var nú allt saman mjög afslappað andrúmsloft hjá okkur, enda varð okkur vel til vinna, frábær náungi hann Holger.

Restina af Laugardeginum notaði ég síðan í að skrifa þessar línur og labba um gamla bæinn í Moers sem er nú bara ansi líflegur.

Annars var ég seinnipat dagsins alveg ótrúlega eirðarlaus, þegar ég var búinn að skrifa þetta allt niður, þ.e. vinnuna alla með Holger og niðurstöðurnar, þetta Lyme dæmi allt saman og guð má vita hvað, þá var þetta allt einkvað svona hálfpartinn yfirþyrmandi!!!   Þannig að ég tók mér góðan göngutúr þarna um almenningsgarðinn sem er í miðborg Moers og já skyndilega heyrði ég þessar heljarinnar kirkjubjöllur hringja og við mér blasti þessi myndarlegasta kirkja, nú ég hef ekki farið í kirkju í mörg herrans ár, þannig að einhvernvegin fannst mér passa að fara inn og já ja síðan var þarna að byrja messa sem ég satt alla þó svo að ég skildi ekki orð, en vá hvað mér leið miklu betur á eftir, já það er á hreinu að máttur bænarinnar er ómælanlegur, líkt og svo margir hafa sagt sem kynnst hafa.

3 hafa sagt sína skoðun
Dagur 2 með Holger:-) - 16. nóvember 2008

Já dagurinn hófst svipað og dagurinn í gær, plannið var reyndar að byrja 0930 en það varð nú reyndar 1030:-) nú áfram héldu síðan prófanir og þessháttar, pása á milli 1300 0g 1400 og svo stanslaust til 1800 já ekki í raun neinu við að bæta síðan í gær, bara verið að fínpússa greininguna og þannig lagað.

Um kvöldið fórum við út að borða ég og Holger ásamt fjölskyldunni hans, þ.e. konu og 8 ára gömlum syni:-)))   Já við áttum frábæra kvöld stund á Ítölskum matsölustað, þannig að þetta var virkilega frábær endir á mögnuðum degi.

Engin hefur sagt sína skoðun
Eldri færslur >>
eXTReMe Tracker
Ásgeir Jónsson | aj@aj.is