Blogg
Dagur 1 með Holger:-) - 16. nóvember 2008

Já dagurinn byrjaði um 0700 en þá dreif maður sig af stað í bægin til að hita Holger, ég átti sem sagt tíma hjá honum kl 0900, ég labbaði í bæinn, en það var rétt um 30 mín labb í þessu fínasta veðri, 10 gráður og stillt veður.   Ég fékk mér morgunmat á leiðinni, í þessari fínu kjörbúð sem var á leiðinni og opnaði kl 0700 hét Ravn eða einkvað svoleiðis minnir mig.

Nú þar sem Holger er ekki stressaður maður byrjuðum við ekki fyrr en rúmlega 0930:-))   Það fyrsta sem hann gerði síðan var að skoða eða já kanna hvort það er ójafnvægi einhverstaðir í vöðvum líkamans.   Þetta er gert á einfaldan hátt, einfaldlega með því að hann lætur mig liggja á bekk og gera hinar ýmsu æfingar, hann heldur á móti og finnur hvort að það er samræmi í vöðvastyrknum þegar ég ýti á móti honum, með þessu móti nær hann að athuga yfir 90 vöðva í líkamanum.

Þetta kom sosum allt eðlilega út, nema náttúrlega voru axlirnar svona og svona og já síðan var stóri vöðvinn sem er aftaná lærinu og tengist upp í rassinn hægramegin skrýtin, enda hægra hnéð að stríða mér.   En svo byrjuðu töfrarnir eða þannig, já því að núna létt hann mig t.d. liggja á bakinu, með hnéð beint upp í loftið og síðan reyndi hann að þrýsta því niður, sem honum náttúrlega tókst ekki – hehe...:-)

EN svo létt hann mig rétt snerta ákveðinn punkt á þumalputtanum á vinstri hendi með vísifingri hægri handar og þá vitið men, ég gat ekki haldið löppinni upp, þetta var svo fáránlegt að mig langaði mest til að öskra...:-)   Já síðan hélt þetta svona áfram, hann létt mig prófa fullt af punktum og stundum gat ég haldið löppinni uppi, stundum ekki.

Eitt var magnað, en það var þegar hann fór að skoða tennurnar, já hann fann fljótt að efra bitið (efri kjálkinn) vinstramegin var einkvað skrýtinn, já bara til það sé á hreinu þá skoðaði hann aldrei upp í mig...:-)   Síðan létt hann mig sjálfan snerta hverja tönn fyrir sig með vísifingri hægri handar, þarna uppi vinstramegin og vitið men, einna tönn sem skar sig úr, var tönn sem ég hef verið að fresta lengi að láta rótarfylla, já svona aðallega í sparnaðarskini...   Já á þessum tímapunkti var hann líka farinn að nota lítið tæki sem gefur frá sér mjög lága raftíðni í og já vitið men, þessar mismunandi tíðnir sem hann prufaði á mér höfðu ótrúlega mikil áhrif hvort ég gat haldið löppinni/hnénu uppi eða ekki.   Það verður nú að segja að stundum var þetta frekar fyndið, því að maður reyndi náttúrlega eins og hægt var að halda löppinni uppi, en svo gerði þessi horrengla einkvað fáránlegt eins og snerta mann einhverstaðar eða láta mann halda á einhverjum rafmagnsskautum og þá missti maður allan mátt, hann glotti og mig langaði helst að öskra, þetta var einkvað svo fáránlegt að maður bara réð ekki við sig:-)))

En hvað er þetta þá allt sem var þarna í gangi, jú já þetta er sosum ekki allt komið á hreint, en við erum jú að tala um ójafnvægi í líkamanum og ég er svo heppinn, eða þannig, að ástæðurnar eru fleiri en einn og fleiri en tvær, við erum jú að tala um að axlirnar hafa áhrif þ.e. uppskurðirnir á þeim báðum þar sem bein var tekið úr mjöðm og sett upp í axlarliðinn og já reyndar virkaði aldrei, fór samt sem áður úr lið eftir þessi stóru inngrip   Tönnin spilar örugglega einhverja ruddlu í þessu (Fyrsta sem ég geri er að fara til tannlæknis þegar ég kem heim...)) nú hann mældi klárlega uppsafnaða eitrun í líkamanum, nú og svo hemur rúsínan í pilsuendanum en hann telur 99% líkur á að ég þjáist af einhverju sem hann kallar „Lyme disease“ það er sem sagt nafnið sem er notað í Bandaríkjunum en nafnið sem er notað í Evrópu er „Borrelios“ já og ég sem taldi mig nú hafa heyrt um flest, en mann alaveganna ekki eftir því að hafa heyrt um þetta, sem er kannski ekkert óeðlilegt – NEMA – að það er nákvæmlega ekkert nýt við þetta og á netinu er ógrynni af upplýsingum um þetta, já og ekki nóg með það, núna nýlega var að koma út heljarinnar heimildamynd um þetta dæmi, og já ég er að tala um álfuru heimildarmynd sem hefur greinilega verið gerð af miklum efnum og já hefur nú þegar hlotið tvenn verlaun!!!   Já þessi mynd heitir sem sagt, „Under our Skin” og nú þegar er hægt að horfa á sýnishorn úr henni á netinu.   En ok tölum aðeins meira um ameríska nafnið á þessu, þ.e. “Lyme Disease” já nafnið Lyme stendur fyrir nafn á bæ sem ku víst vera staddur í Flórída fylkinu í Bandaríkjunum og eftir því sem mér skildist á Holger, var starfrækt þar rannsóknastofa sem gekk undir nafninu “Lab 57” og þar stóð herinn fyrir tilraunum með eiturefna rannsóknir fljótlega eftir WW2 og síðan varð slys og þessi vírus slapp út og smitast með flugum…  

Núna þegar ég skrifa þetta hef ég ekki komist á netið til að lesa mér til um þetta, heldur er þetta það sem mér hefur skilist á Holger og já stundum var enskan hans ekki upp á það besta, þannig að ég vona þetta sé nú samt nokkuð næri lægi…

Já í raun hljómar þetta allt saman eins og í góðri vísindaskáldsögu, en er ekki oft sagt að sannleikin sé sagna ótrúlegastur, eða einkvað þannig.   En aftur að Lyme dæminu, sumt fólk er víst ónæmt fyrir þessu, hjá öðru getur þetta legið í dvala og svo komið upp og já ég held að þetta smitist með flugum.   Ég skrifa síðan meira um þetta þegar ég veit meira.

En ok hvað er til ráða við þessu öllu saman, að sögn Holgers eru nokkrar þekktar meðferðir við þessu öllu saman, en þetta er það sem hann telur að henti mér best og mínum aðstæðum, þ.e. ég hef ekki greiðan aðgang að honum á hverjum degi:

·          Fara til tannlæknis vegna tannarinnar góðu og hugsanlega láta fjarlægja allar fyllinar sem eru úr Almagam

·          Taka sérstaka útgáfu af Spírulínu, til að hjálpa líkamanum að afeitrast

·          Hann lánar mér svona lítið rafmagnstæki til að taka með mér og það þarf ég að nota 1 sinni á dag, klukkutíma í senn

·          Borða holt og lifa heilsusamlegu lífi… Hehe ekki erfitt fyrir mig reyndar

Nú það besta við þetta allt saman er að árangurinn á að vera nokkuð fljótur að skila sér, þ.e. á næstu 2 til 3 vikum á ég að finna mun, jam spennandi:-)

Nú dagurinn var annars þannig að ég var að vina með honum til að verða 1400 í allskonar tilraunum og meðferðum, síðan fékk ég pásu á milli 1400 og 1700 en þá byrjuðum við aftur og vorum til 1930 þá rölti ég heim á gistiheimilið góða eftir magnaðan dag.

Já er loksins komin í netsamband á flugvelinum í Frankfurt og já mér sýnist þetta allt stemma:   http://en.wikipedia.org/wiki/Lyme_disease

Engin hefur sagt sína skoðun
Dagarnir með Holger:-) - 16. nóvember 2008

Ég var komin til Dusseldorf um 2130 að kvöldi miðvikudagsins 12 nóvember, nú og ég var svo heppinn að taskan mín skilaði sér ekki þó svo að um beint flug frá Nurnberg væri að ræða, já þannig að maður stóð upp nánast á skyrtunni og það var langt ferðalag fyrir höndum, en er ekki sagt að fall sé farar heil;-)  

Klukkan var því um 2230 þegar ljóst var að taskan var ekki með, þannig að þá var ekkert annað að gera en að hlaupa af stað til að ná seinustu lest til Duisburg.   Fyrst tók maður lest frá flugvellinum á lestarstöðina sjálfa í Dusseldorf, sem reyndar var nú bara rétt um 10 mín ferð og síðan tók ég lest þaðan til Duisburg, ætli það hafi ekki verið ca 30 mín lestarferð þarna á milli, max.  

Já í lestinni sat ég á móti strák sem var alveg magnaður, hann var ca 30 til 40 kg of þungur, var að haka í sig þennan heljar hamborgar sem hann hafði greinilega gripið með sér, en ekki nóg með það, hann var líka með fartölvu með sér og var að horfa á einhverja heljarinnar hasarmynd, já í raun mátti hann hafa sig allan við til að ná að hafa stjórn á þessu öllu, eyrnatólunum, fartölvunni (var ekkert pláss fyrir hana) hamborgaranum, frönskukartöflunum og sósunni, en já allt hafðist þetta nú hjá kappanum:-)))

Nú síðan sóti hann Holger mig á brautarstöðina í Duisburg, já ég veit eiginlega ekki við hvernig manni ég bjóst, en já hann kom á óvart, en svona eftirá að hyggja, kannski ekki;-)

Holger Schwellnus er hávaxin maður, hátt í tveir metrar, með sítt grátt hár, tekið saman í tagl fyrir aftan haus, mjög grannur (fyrirverandi afreksmaður í sundi) handleggja og lappa langur en já alveg einstaklega almennilegur og viðkunnanlegur maður í alla staði, er líklega öðru hvoru megin við fertugt.   Hann myndi mig reyndar töluvert á hann Victor Kruger í Highlander myndunum sem var jú leikin af Clancy Brown ef ég man rétt:-)))   Já nú hann keyrði mig síðan til Moers, en þar býr hann og starfar, þannig að á leiðinni sýndi hann mér hvar stofan hans er og síðan keyrði hann mig á gistiheimilið sem ég mun búa á, sem er nú í raun svona heimagistin hjá konu sem leigir út tvö herbergi, enda er verðið mjög sanngjarn, eða rétt um 25 EURO per nótt, morgunmatur ekki innifalinn.

Nú þangað var ég komin um miðnættið.   Já þess má líka geta að hann Holger var að koma beint úr vinnunni þegar hann sóti mig á lestarstöðina, þannig að það er nóg að gera hjá kallinum.

Engin hefur sagt sína skoðun
Sál og líkami – Andinn og holdið:-) - 12. nóvember 2008

Það er ágæt að nota tímann meðan ég bíð eftir flugi hérna frá Nurnberg til Dusseldorf og setja nokkur orð á blað um mataræð, en já það er orðið ansi langt síðan ég hef gert það...:-)  

 

Já það hefur sko aldeilis margt breyst á þeim bænum hjá manni.   Því að í nokkur skipti, hef ég haldi að ég væri nú aldeilis búinn að komast að stóra sannleikanum um mataræðið, en svo hef ég lært einkvað nýtt eða upplifað og séð með mínum eigin augum einhvap nýt og þá hef ég áttað mig á því að í raun vissi ég ekki neyt, eða þannig:-)

Núna veit ég að í raun mun ég aldrei komast að stóra sannleikanum um mataræði, einfaldlega vegna þess, að það sem gildir fyrir einn, gildir alsekki fyrir annan og svo framvegis.   EN líka, þá er svo margt að breytast í þessum fræðum og raun einsog Halli Magnússon vinnur minn segir, ef þið hlustið á mig halda fyrirlestur um mataræði í dag og ég segi það sama á fyrirlestri eftir 2 ár, þá hef ég staðnað og þið ættuð ekki að vera að hlusta á mig:-)  

Já því er það þannig að ég var að skoða fyrirlestur um mataræði sem ég hélt sjálfur fyrir 2 árum og já mér leið nú hálf ylla þegar ég sá hann, vá hvað mikið hefur breyst...!!!

Já núna er þetta svona soltið svona „ back to basic “, eða líkt og Hippocrates sagði fyrir 2.500 árum

·          Látið matinn vera lyfin ykkar og lyfin vera matinn ykkar

·          Maðurinn nærist ekki á því sem hann gleypir heldur á því sem hann meltir og notar

·          Náttúrulegir kraftar innra með okkur eru hinir sönnu kraftar til lækningar á sjúkdómum

 

Það sem ég hef breyst mest undanfarið er að ég hef algerlega hætt að fá mér þessa svokölluðu prótíndrykki, einfaldlega af því að líkamann á erfitt með að melta þá og já mér líður líka miklu betur án þeirra.   Já í raun hef ég minkað mjög mikið alla prótín neyslu og í staðin hef ég t.d. aukið mikið fituneyslu, já sérstaklega þá ómega 3 og ómega 3,6 og 9 ásamt ólífuolíu, EN við erum líka að tala um hreinan rjóma og hreint smjör, ásamt krakkalýsi sem er náttúrlega toppurinn á öllu lýsi:-)) En já Krakkalýsi hefur hæsta hlutfalið t.d. af fitusýrunum góðu, EPA og DHA, ásamt A og D vítamíni, enda tek ég ekki lengur inn A og D vítamín í töfluformi.  

 

En látum Voltaire hafa seinasta orðið „ Læknar gefa lyf sem þeir vita lítið um gegn sjúkdómum sem þeir vita enn minna um, fólki sem þeir vita ekkert um” En já Voltaire var franskur 17. aldar heimspekingur:-)

5 hafa sagt sína skoðun
Að halda alltaf áfram 2:-) - 11. nóvember 2008

Já er núna á leiðninni til Þýskalands, eða nánar til tekið til Moers, sem er lítil bær ekki svo langt frá Dusseldorf, fer reyndar fyrst á sýningu í Nurnberge, flýg svo þaðan til Dusseldorf á miðvikudagskvöldið, tek lest frá flugvelinum til Duisburg og þaðan síðan leigubíl til Moers:-)   Já þar er ég að fara að hita hann Dr. Holger en hann er svona óhefðbundin læknir, samt menntaður læknir, sem ku leita að orsökum vandamála, ekki bara að reyna að „fixa“ þau...:-)

Hann Markús Máni fyrrum handbolta kappi aðstoðaði mig við að komast í samband við hann, en já þessi læknir ku vera alveg snillingur í að hjálpa fólki að sigrast á erfiðum og langvinnum meiðslum, líkt og hefur verið að hrjá mig undafarið eitt og hálft ár eða svo.

Já ég er verulega spenntur fyrir þessu og já það er alveg ljóst að maður er ekkert að fara að gefast upp, þetta er jú bara spurning um tíma, hvenær ég sigrast á þessu, því að ég mun sigra þetta að lokum, ekki spurning, hvort það tekur mig 2 mánuði í viðbót eða nokkur ár, þá mun ég sigra þetta:-)

5 hafa sagt sína skoðun
Algerlega einstak afrek:-) - 08. nóvember 2008

Já hvernig er hægt að sleppa því að blogga um svona afrek, maður hreinlega verður að segja frá þessu, já honum Marshall Ulrich tókst það, að hlaupa yfir Bandaríkin á met tíma, eða samtals 4.900 km á 52 dögum eða 94 km per dag, eða 2,33 heil maraþon per dag í 52 daga.   Já hvernig er þetta hægt, jú eins og Marshal segir „if you can dream it, you can do it“ Já og „Believing that the only limitations are in your mind. And nothing limits Marshall!”   já og ekki nóg með það, hann er 57 ára gamall.

Já ég varð þess heiður aðnjótandi að heimsækja hann í Colorado fyrir tæpum 2 árum, já það var margt sem maðr gat lært af honum, þá meina ég um hugarfar, æfingar og mataræði, þá var ég ekki sammála hans sýn á mataræði, en ég er það algerlega núna hinsvegar.

Já það væri langt mál að telja upp allt sem hann hefur afrekað, en ég hef reyndar gert það hérna á síðunni minni undir „ultramarthon“ og „Mind Set 

Að lokum vil ég bara óska honum til hamingju með þennan magnaða árangur.

http://blog.runningamerica08.com/

http://www.runningamerica08.com/

Já það sem mér finnst líka sérstaklega gaman að með þetta er að undafarinn 2 ár hef ég verið að tala um hann í fyrirlestrum hjá mér, og alltaf sagt frá þessari fyrirætlan hans og já núna er hann búinn að ljúka þessu:-)

4 hafa sagt sína skoðun
<< Yngri færslur Eldri færslur >>
eXTReMe Tracker
Ásgeir Jónsson | aj@aj.is